VERKEFNIÐ
Velkomin í Þorraholt – nýtt og metnaðarfullt verkefni í hjarta Garðabæjar þar sem nútímaleg hönnun, gæði og þægindi mætast í einu heildstæðu samfélagi. Hér rísa 208 fjölbreyttar íbúðir sem bjóða upp á heimili fyrir fólk á öllum lífskeiðum – frá ungu fólki að stíga sín fyrstu skref á húsnæðismarkaði til þeirra sem vilja einfalda daglegt líf og njóta þæginda til framtíðar.
Þorraholt er hannað með það að markmiði að skapa lífsgæðasamfélag þar sem arkitektúr, náttúra og daglegt líf spila saman. Byggingarnar eru bjartar og fallegar með nútímalegri ásýnd.


