INNANHÚSHÖNNUN

Íbúðirnar í Þorraholti eru hannaðar af mikilli alúð með áherslu á gæði, þægindi og nútímalegan lífsstíl. Góð rýmisnýting og stórir gluggar tryggja björt heimili. Innréttingar eru frá GKS og borðplötur ýmist frá GKS eða Rein. Eldhústæki eru Siemens, frá Smith og Norland og hreinlætistæki eru frá Húsasmiðjunni. Sumar íbúðir eru með Bora helluborði frá GKS með innbyggðri viftu en aðrar með span helluborð frá Siemens.

Við val á innréttingum var ákveðið að hafa þrjár mismunandi innréttingategundir. Fyrsta tegundin er Hnota og er hún í húsum 17 og 19A, tegund nr 2 er Sand og er hún í húsum 13C og 13D og síðasta tegundin er Como oak (ljóst eikarútlit) sem er í húsum 19B , 19C, 15 og 11. Í mörgum íbúðum er steinn á borði frá Rein steinsmiðju og helluborð með innbyggðri viftu frá BORA.

Efnisval

Borðplata er ýmist frá GKS eða steinn frá Rein en athugið að efnisval getur tekið breytingum og er þessi uppsetning aðeins til viðmunar.

Smellið á heiti til að skoða efnisval.

Hnota
Hnota
Hnota
Como oak
Como oak
Como oak
Sand
Sand
Sand
Smellið á heiti til að skoða efnisval. Borðplata er ýmist frá GKS eða steinn frá Rein

TÆKI ERU SIEMENS FRÁ SMITH OG NORLAND